Azitrómýsin er sjúkrahúslyf ætlað: Við lungnabólgu sem smitast utan sjúkrahúss og er af völdum næmra örvera (sjá kafla 5.1 í SmPC) hjá fullorðnum sjúklingum þegar þörf er á upphafsmeðferð í bláæð og til meðferðar gegn bólgusjúkdómi í grindarholi (pelvic inflammatory disease) af völdum næmra örvera (sjá kafla 5.1 í SmPC), þegar þörf er á upphafsmeðferð í bláæð. Fylgja skal opinberum leiðbeiningum um viðeigandi notkun sýklalyfja.
| Vörunúmer | Styrkleiki | Magn |
|---|---|---|
| 516219 | 500mg | 1 |