Alvogen hóf sölu sína á lyfjum á Íslandi árið 2014, eftir að hafa sameinað krafta sína við lyfjafyrirtækið Portfarma. Portfarma hefur starfað á íslenskum lyfjamarkaði frá árinu 2005 og hefur á þeim tíma markaðssett um 50 lyf á Íslandi ásamt ýmsum heilsutengdum vörum.
Viðskiptavinir munu áfram njóta þeirrar persónulegu þjónustu sem þeir eiga að venjast frá Portfarma og sama starfsfólkið verður í framlínunni, en nú með mun stærri fjölskyldu að baki.
Listi yfir lyf sem seld eru gegn framvísun lyfseðils. Alvogen starfar eftir viðamiklu gæðakerfi og lyfin eru framleidd í verksmiðjum sem uppfylla ströngustu kröfur lyfjastofnana og neytanda.
NánarÞau lyf sem heimilt er að selja án lyfseðils eru kölluð handkaupslyf eða lausasölulyf. Þau eru merkt í lyfjaskránni með „án lyfseðils“.
NánarAlvogen býður upp á vandaðar heilsutengdar vörur sem seldar eru í apótekum og til heilbrigðisstofnana um allt land. Vöruvalið spannar vítt svið.
Nánar