Alfuzosin hydrochlorid ratiopharm inniheldur virka efnið alfúzósín og tilheyrir flokki lyfja sem kallast alfa-adrenviðtaka blokkar eða alfablokkar.
Það er notað til meðferðar við alvarlegum einkennum góðkynja stækkunar blöðruhálskirtils. Stækkun blöðruhálskirtils getur valdið þvaglátsvandamálum, svo sem tíðum þvaglátum og erfiðleikum við þvaglát, einkum að nóttu. Alfa-blokkar slaka á vöðvunum í blöðruhálskirtlinum og efst í þvagrásinni. Þetta auðveldar flæði þvags úr blöðrunni.
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá - www.serlyfjaskra.is
| Vörunúmer | Styrkleiki | Magn |
|---|---|---|
| 050306 | 10 mg | 90 stk. |