Fjölmiðlatorg
Sérfræðingur í lyfjaskráningum og lyfjagát
VIÐ LEITUM AÐ METNAÐARFULLUM EINSTAKLINGI TIL STARFA SEM SÉRFRÆÐINGUR Á SKRÁNINGARSVIÐI.
TÍMABUNDIN RÁÐNING TIL 15 MÁNAÐA.
Helstu verkefni:
» Utanumhald yfir öll markaðsleyfi Alvogen og umboðsfyrirtækja
» Áætlunargerð verkefna
» Undirbúningur og innsending skráningarumsókna
» Alhliða þýðingarvinna á textum sem fylgja umsóknum um markaðsleyfi
» Samskipti við lyfjayfirvöld
» Ábyrgð á lyfjagát fyrir hönd Alvogen á Íslandi
» Skráning upplýsinga í gagnagrunna
» Gæðaeftirlit með umpökkunum lyfja.
Menntunar- og hæfniskröfur:
» Háskólamenntun af heilbrigðis- eða raunvísindasviði
» Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
» Hæfni til að vinna með lyfjafræðilega texta á ensku og íslensku
» Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfileikar skilyrði
» Sjálfstæð vinnubrögð
» Gott vald á ensku og íslensku
» Góð almenn tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar næstkomandi og sótt er um starfið á vefsíðu Alvotech.
Ef þú hefur spurningar varðandi starfið eða ráðningarferlið sendu þá tölvupóst á Brynja.Solmundsdottir@alvogen.com ogGudrun.Gunnarsdottir@alvogen.com