Fjölmiðlatorg
Starfsmaður Alvotech hlýtur hvatningar-verðlaun Rannís
Forstöðumaður gæðarannsóknadeildar hjá Alvotech og prófessor við lyfjafræðideild Háskóla Íslands, dr. Sesselja Ómarsdóttir, hlaut á dögunum hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs sem afhent voru á sérstöku afmælisþingi Rannís fimmtudaginn 26. nóvember.
Við úthlutun verðlaunanna er sérstaklega horft til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi. Sérstakt tillit er tekið til brautryðjendastarfs í vísindum.
Náms- og starfsferill Sesselju er aðdáunarverður. Sesselja vann meistaraverkefni sitt að hluta við danska Lyfjafræðiháskólann í Kaupmannahöfn og fékk fyrir það hæstu einkunn sem gefin er. Hún varði doktorsritgerð sína frá Háskóla Íslands vorið 2006 á sviði lyfja- og efnafræði náttúruefna. Doktorsverkefni Sesselju fjallaði um fjölsykrur úr íslenskum fléttum, efnabyggingar og áhrif á ónæmiskerfi mannsins.
Þá hrinti Sesselja af stað rannsóknum á efnaauðlindum íslenskra sjávarlífvera í góðu samstarfi við vísindamenn bæði hérlendis og í Bandaríkjunum. Verkefnið er mikilvægt framlag til þeirrar viðleitni að afla nauðsynlegrar þekkingar um auðlindir Íslands svo unnt sé að skapa úr þeim verðmæti.
Um verðlaunin sagði Sesselja:
Þetta er mikil viðurkenning og hvatning fyrir áframhaldandi störf. Ég bind miklar vonir við að aukin áhersla verði lögð á að styrkja unga vísindamenn og nýliðun hér á landi.
Sesselja hóf störf hjá Alvotech síðastliðið sumar og gegnir þar stöðu forstöðumanns gæðarannsókna (QC), en um þessar mundir er vinna við uppsetningu rannsóknastofa og efnagreiningaraðferða komin á skrið í nýju hátæknsetri innan Vísindagarða Háskóla Íslands. Á næstu misserum mun Alvotech hefja samstarf við HÍ á sviði lífvísinda en nú starfa um 80 innlendir og erlendir sérfræðingar hjá fyrirtækinu.