Fjölmiðlatorg

Árlegur stjórnendafundur Alvogen haldinn í Tælandi

Skrifað 15.2.2016

Árlegur fundur lykilstjórnenda Alvogen var haldinn í Tælandi í janúar þar sem saman voru komnir 115 stjórnendur fyrirtækisins. Á fundinum var farið yfir framtíðarsýn Alvogen og áherslur fyrir komandi ár. Þema fundarins var í kringum framtíðarsýn fyrirtækisins um að byggja upp leiðandi alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem verður "Preferred Partner" á öllum sínum markaðssvæðum.

Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, ásamt framkvæmdastjórum samstæðunnar kynntu markmið fyrirtækisins og svöruðu spurningum fundarmanna sem tóku virkan þátt. Hvert markaðssvæði Alvogen hélt vinnufundi þar sem markmið og áherslur hvers markaðssvæðis og sviða fyrir sig voru ræddar.

Róbert Wessman var ánægður með viðburðinn og sagði: 

„Við höfum byggt upp öflugt alþjóðlegt fyrirtæki á skömmum tíma en markmið okkar er að ná enn lengra. Við stefnum að því að byggja upp eitt af fimm stærstu fyrirtækjum heims á okkar sviði á heimsvísu fyrir árið 2020. Á fundi okkar í Tælandi gafst tækifæri til að stilla saman strengi og fara yfir áherslur og markmið fyrir komandi ár. Árið 2016 verður viðburðarríkt ár hjá okkur en við búumst áfram við góðum innri vexti og markaðssetningu nýrra samheitalyfja,“