Alvogen er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með starfsemi í 35 löndum. Hjá fyrirtækinu starfa um rúmlega 2.800 metnaðarfullir starfsmenn sem vinna að því að byggja upp leiðandi og framsækið alþjóðlegt lyfjafyrirtæki. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja, lausasölulyfja og líftæknilyfja. Starfsemi Alvogen byggir á traustum grunni og dótturfélög Alvogen eiga sér langa sögu.
Við erum óhrædd við að fara nýjar slóðir. Allt starf okkar er þjónustudrifið og sniðið að þörfum viðskiptavina okkar. Við leggjum okkur fram um að finna nýjar leiðir í rekstri og vera skapandi í okkar daglegu störfum.
Með því að ganga til liðs við Alvogen gengur þú til liðs við stóran hóp af fólki á heimsvísu. Hóp sem hefur sameiginlega sýn – er kappsfullt, forðast stöðnun og er í góðum tengslum víða um heim.
Við erum stöðugt að leita að skemmtilegu og kraftmiklu fólki til að taka þátt í því að byggja upp leiðandi alþjóðlegt lyfjafyrirtæki. Við höfum gaman af því að vinna saman og leitum að fólki með stórt hjarta, drifkraft og metnað til að takast á við krefjandi verkefni.